K-array

Hljóð sem sést ekki

Ítalskir hátalarar sem eru tveir sentímetrar á dýpt, tveir metrar á lengd eða á stærð við penna — hannaðir fyrir rými þar sem venjulegur hátalari á ekki heima.

Fáðu ráðgjöf
Hvað eru sérlausnir
Hvað eru sérlausnir

Þegar rýmið leyfir ekki venjulegan hátalara

Gler, steinn, hátt til lofts, friðuð bygging, eða einfaldlega arkitekt sem vill ekki sjá kassa á veggnum. K-array smíðar hátalara sem leysa nákvæmlega þetta: álprófílar sem falla inn í burðarvirkið, sveigjanlegar lengjur sem fylgja boga, og línuhátalarar sem bera hljóðið langt án þess að öskra.

Grennstur2 cm
Lengstur2 m
Ábyrgð5 ár
Vöruraðir
LyzardVyperAnakondaAzimutKoralDolomiteThunderKGEARKSCAPE
Notkunarsvið

Hvar þetta á við

Sömu vörurnar leysa ólík verkefni. Þetta er það sem við setjum oftast upp — segðu okkur frá rýminu og við finnum leiðina.

  • Veitingastaðir og hótel Veitingastaðir og hótel Tónlist sem fyllir salinn jafnt en yfirgnæfir ekki samtalið við borðið.
  • Verslanir Verslanir Hljóð úr loftinu sem enginn tekur eftir fyrr en slökkt er á því.
  • Heimili og stofur Heimili og stofur Hátalarar sem hverfa í vegginn — eða standa sem húsgagn ef þú vilt sjá þá.
  • Kirkjur og söfn Kirkjur og söfn Talað orð sem skilst í öllum bekkjum, í rými sem má ekki bora í.
  • Fundarrými og skrifstofur Fundarrými og skrifstofur Hljóðkerfi sem truflar ekki hönnunina og þolir að vera notað daglega.
  • Bátar og utandyra Bátar og utandyra Ryðfrítt stál og IP-vörn fyrir salt, regn og íslenskt veður.
Lyzard-KZ

Svona lítur hann út að innan

Minnsta einingin sem K-array smíðar er tíu sentímetrar og rúmast í lófa. Það er þessi þéttleiki sem gerir hana ósýnilega í loftinu — og um leið ástæðan fyrir því að hún kostar meira en hátalari sem má vera stór.

Vyper og Lyzard

Tveir sentímetrar á dýpt

Vyper er flatasti hátalari sem K-array smíðar — álrammi sem liggur þétt upp að veggnum og dreifir hljóðinu jafnt eftir endilöngu rýminu. Lyzard er sama hugsun í smæstu mynd: tíu sentímetra eining sem hverfur inn í loft eða vegg.

Vyper25–100 cm
Lyzard10 cm
Vyper og Lyzard
Koral-súla við sjónvarp í stofu
Azimut: magnari, tveir hátalarar og bassi
Koral í fjórum áferðum
Azimut og Koral

Heilt kerfi sem sést varla

Azimut er fullbúin lausn í einum pakka — hátalarar, bassi og magnari sem tala saman og eru stillt í einu viðmóti. Koral er súluhátalari fyrir rými þar sem útlitið má ekki gefa eftir en hljóðið verður að ná alla leið.

Áferðir
KSCAPE og KGEAR

Ljós og hljóð í sömu brautinni

KSCAPE Rail er ljósabraut með hátölurum innbyggðum — ein braut í loftinu í stað tveggja kerfa. KGEAR er harðgerða línan: ryðfrítt stál, IP-vörn og verð sem gengur upp í stærri verkefnum.

KSCAPE og KGEAR

K-array hjá okkur

2 cmþynnsti hátalarinn
5 árábyrgð á öllum línum
2 mlengsti hátalarinn

Af hverju K-array

Hannað og smíðað á Ítalíu

Í Toscana, af fyrirtæki sem gerir ekkert annað en hátalara.

Fimm ára ábyrgð

Á öllum línum. Þeir þora því af því að þetta er ál og ryðfrítt stál, ekki spónaplata.

Hverfur í rýmið

Hátalari sem arkitektinn samþykkir er hátalari sem verður keyptur.

Við setjum upp og stillum

Kerfið er hannað fyrir rýmið þitt og mælt þegar það er komið upp — ekki afhent í kassa.

Segðu okkur frá rýminu

Sendu okkur teikningu, mynd eða bara lýsingu. Við förum yfir hvað á við, hvað það kostar og hvað þarf að vera komið áður en uppsetning hefst. Það kostar ekkert og bindur þig ekki.

Bóka hlustun Karfa (0)